Hnefaleikafélagið Æsir var stofnað í janúar 2007 af Vilhjálmi Hernandez, Sólveigu Gunnarsdóttur og Skúla Ármannsyni. Félagið er sambandsaðili ÍSÍ.
Starfsemi Tilgangur félagsins er þessi: Að kenna og iðka áhugamannahnefaleika (Ólympíska hnefaleika), vera ávallt með bestu mögulegu aðstöðu fyrir æfingar í hnefaleikum og geta veitt börnum, unglingum og keppnisfólki bestu mögulegu kennslu sem völ er á. Að gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um grundvallarreglur iðkenda hnefaleika. (sbr. 2. gr. laga Hnefaleikafélags Ása). Þar að auki viljum við leggja áherslu á barna og unglingastarfsemi þar sem við teljum að íþróttaiðkun efli börn og unglinga á margvíslega vegu og gefi þeim góða kosti í farteskið með sér út í lífið.
HFÆ er nýtt og upprennandi félag sem hefur margt upp á að bjóða. Markmiðin eru að koma hnefaleikum betur á framfæri hérlendis jafnt sem erlendis. Aðalmarkmið okkar er hins vegar að byggja upp hnefaleika hérlendis og bjóða upp á vandaða kennslu fyrir iðkendur. Sérstök áhersla er lögð á börn og unglinga í gegnum Kinitro hvatningarkerfið og lífsleikni.